SÁLFRÆÐINÁMSKEIÐ
Tengsl og þýðing þeirra fyrir geðheilsu okkar - fjarstreymi
Mannfólkið er hópdýr og það er grundvallarforsenda andlegs heilbrigðis að upplifa sig sem hluta af hópi, að tilheyra. Um er að ræða tveggja klukkustunda fræðslufyrirlestur með verkefnum. Fyrir hlé er farið í fróðleik um áhrif fyrstu tengsla á andlegt heilbrigði, samband fyrstu tengsla og þeirra tengsla sem fólk myndar síðar á lífsleiðinni. Eftir hlé eru fólki gefin verkfæri til að vinna að betri tengslamyndun við fólkið í kringum sig.
Fyrir hvern: Þessi fyrirlestur er upplagður fyrir tvo hópa fólks, annars vegar verðandi foreldra og hins vegar fólk sem hefur gisið tengslanet í kringum sig.
Nálgun og heimildir: Tengslakenning (attachment theory) og taugalífeðlisfræði samskipta (interpersonal neurobiology), Daniel Siegel, Bruce D. Perry.
Lágmarksfjöldi þátttakenda: 4
TÍMAR
1. sep kl. 15:00, 3. nóv kl. 15:00
2 klst (2x 50 mín með hléi á milli)
VERÐ
10.000 kr.
FYRIRLESARI
Vinsamlegast skráðu þig hér fyrir neðan eða hafðu samband í síma 5 11 10 11.