SÁLFRÆÐINÁMSKEIÐ
AÐ LIFA MEÐ LANGVINNUM VERKJUM (Hópmeðferð fyrir fólk með langvinna verki)
Um er að ræða 8 skipta hópmeðferð, samtals 16 klst, þar sem unnið er með langvinna verki eftir aðferðum Acceptance and Commitment Therapy.
Námskeiðið er ætlað fólki sem glímir við langvinna verki.
Á námskeiðinu lærir fólk:
Um sálfræði sársauka – hvaða þættir stjórna upplifun okkar
Upplifa óvelkomnar tilfinningar og skynhrif sem náttúruleg viðbrögð sem tengjast þeirra persónulegu sögu
Læra að upplifa óþægilegar tilfinningar sem bara það sem þær eru
Sjá hvernig secondary distress (tvöfaldur sársauki) margfaldar áhrifin á sársaukaupplifunina, hvernig það að bregðast við sársaukanum með vörn, margfaldar hann
Þjálfa upp hæfileikann til að komast í tengsl við óþægilegar tilfinningar þegar markmið eða gildi krefjast þess
Að þjálfa sig í að skilja á milli sjálfs síns og hugsanna sinna
Acceptance and Commitment Therapy er gagnreynt meðferðarform sem gengur út á að auka sveigjanleika í hugsun og kenna fólki að vinna með tilfinningum sínum frekar en á móti þeim. Uppruna meðferðarformsins má rekja til hugrænnar aðferlismeðferðar og búddískrar hugmyndafræði. Fólki er kennt að koma auga á eigin gildi í lífinu og að nálgast og vera með erfiðum tilfinningum í stað þess að flýja þær, með því augnamiði að ná að vinna úr þeim og stýra lífi sínu og líðan á markvissari hátt en áður.
Acceptance and Commitment Therapy er að riðja sér til rúms sem ein helsta meðferð við langvinnum verkjum í dag. Rannsóknir gefa til kynna að ACT beri svipaðan árangur við upplifun verkja og hugræn atferlismeðferð, sem hingað til hefur verið eitt helsta verkfæri sálfræðinnar við langvinnum verkjum, en að hún taki hugrænni atferlismeðferð fram að því leyti að fólk upplifi meiri sátt og aukin lífsgæði þrátt fyrir verki.
Vinsamlegast skráðu þig hér fyrir neðan eða hafðu samband í síma 5 11 10 11.
TÍMAR
Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00.
Næsta námskeið fer af stað 11. ágúst 2021.
VERÐ
80.000 kr.
KENNARAR