SÁLFRÆÐINÁMSKEIÐ

ÁFÖLL OG VIÐBRÖGÐ VIÐ ÁFÖLLUM - fjarstreymi

Klukkustundarlangur fyrirlestur um áföll, eðlileg einkenni og líðan í kjölfar þeirra, og hvaða þættir skipta máli þegar kemur að bata. Rætt er um hvað gerist þegar bati verður ekki og farið yfir einkenni áfallastreituröskunar og flókinnar áfallastreituröskunar.

Fyrir hvern:  Fólk sem lent hefur í áföllum. Ekki er um meðferðarinngrip að ræða en getur verið góð leið til að auka áhugahvöt fyrir áfallameðferð svo dæmi sé tekið.

Nálgun og heimildir: Sótt er í smiðju helstu sérfræðinga á sviði áfalla í heiminum í dag, má þar nefna Bessel van der Kolk og Peter Levine.

Lágmarksfjöldi þátttakenda: 4

Tímasetningar:


TÍMAR
6. okt kl. 15:00, 1. des kl. 15:00

1 klst.

VERÐ
7.500 kr.

FYRIRLESARI

Lilja Sif Þorsteinsdóttir
Sálfræðingur

 
 

Vinsamlegast skráðu þig hér fyrir neðan eða hafðu samband í síma 5 11 10 11.