SÁLFRÆÐINÁMSKEIÐ
AFTUR TIL SJÁLFRAR MÍN
Námskeið sem hefur fengið fádæma dóma þátttakenda og er ætlað konum með áfallasögu og/eða tilfinningalega erfiðleika, og markmið námskeiðsins er að gefa þátttakendum verkfæri til að tengjast sjálfri sér betur, bæði líkamlega og andlega. Námskeiðið er sett þannig upp að fyrri hlutinn er fræðsla og umræður og seinni hlutinn eru æfingar sem miða að því að tengja þátttakendur betur við sjálfa sig og líkama sinn – jóga, núvitund, hugleiðsla og/eða verkefnavinna.
1. tími Hvað eru áföll
2. tími Líffræði áfalla
3. tími Áhrif uppvaxtar
4. tími Áhrif félagstengsla
5. tími Að skilja eigin viðbrögð
6. tími Tilfinningar og tilfinningastjórnun
7. tími Innri gagnrýnandinn
8. tími Ytri gagnrýnandinn
9. tími Reiði, hatur, fyrirgefning
10. tími Svefn, melting, öndun
11. tími Fíkn
12. tími Gildi
13. tími Félagsfærni, traust, mörk
14. tími Bataferillinn
Fyrir hvern: Ætlað konum með áfallasögu og/eða tilfinningalega erfiðleika
Nálgun og heimildir: Bókin Complex PTSD: From Surviving to Thriving var höfð til hliðsjónar við gerð námskeiðsins, ásamt því að sótt er í smiðju margra sérfræðinga á sviði áfalla. Má þar nefna Bessel van der Kolk, Peter Levine, Daniel Siegel og fleiri.
Lágmarksfjöldi þátttakenda: 4
TÍMAR
Tímasetningar: 9. sep kl. 9 - 12
Tímalengd: Námskeiðið stendur yfir 1x í viku í 14 vikur, alls 42 klst.
VERÐ
210.000 kr.
FYRIRLESARAR
Vinsamlegast skráðu þig hér fyrir neðan eða hafðu samband í síma 5 11 10 11.