SÁLFRÆÐINÁMSKEIÐ

STERKARI TIL BAKA

Í úrræðinu Sterkari til baka fær einstaklingurinn aðstoð fagfólks við að fara í gegnum markvissa sjálfskoðun á mikilvægum þáttum sem eru að hafa áhrif á hans starfsgetu. Þannig er vakin athygli einstaklingsins á því hvaða þættir nýtast honum sem styrkleikar og hvaða þættir hindra hann í því að ná meiri árangri. Er einstaklingurinn leiddur í gegnum markvissa sjálfsskoðun sem leiðir til ítarlegrar áætlunar sem einstaklingurinn getur unnið áfram með til lengri tíma. 

Til skoðunar á styrkleikum og hindrunum eru viðurkenndir skimunarlistar nýttir, sem og markviss þátttaka einstaklingsins í tímum og í formi heimaverkefna. Lögð er áhersla á að efnið sé aðgengilegt og auðskiljanlegt einstaklingum með mismunandi getu. 

Fyrir hvern:  Horft er til einstaklinga á öllum aldri sem hafa dottið niður í ákveðna óvirkni samhliða því að detta út af vinnumarkaði og talið er að þurfi á markvissri sjálfseflingu og leiðbeiningum að halda til að ná hámarks samfélagsþátttöku. Eins er horft til þeirra einstaklinga sem hafa oft á tíðum brotna sögu en erfitt er að ná utan um heildarmyndina og þurfa markvisst utanumhald o.þ.m. skoðun á þeirra getu/áhugahvöt. 

Nálgun og heimildir: Reynsla námskeiðshaldara í endurhæfingu hinna ýmsu hópa hefur gefið þeim dýrmæta innsýn inn í þær transdíagnostísku breytur sem mikilvægt er að ávarpa í sálfræðimeðferð þeirra einstaklinga sem um ræðir. Hér hafa þær safnað saman þeim megin þemum sem upp koma í samtalsmeðferð innan þverfaglegrar endurhæfingar, en námskeiðið er hannað að norskri fyrirmynd.

Lágmarksfjöldi þátttakenda: 4


TÍMAR
Tímasetningar: 25. ágú kl. 13 - 15, 20. okt kl. 13-15
Tímalengd: Námskeiðið stendur yfir í tvær klst einu sinni í viku í átta vikur, alls 16 klst.

Vinsamlegast skráðu þig hér fyrir neðan eða hafðu samband í síma 5 11 10 11.

VERÐ
80.000 kr.

FYRIRLESARAR

Lilja Sif Þorsteinsdóttir Sálfræðingur

Lilja Sif Þorsteinsdóttir
Sálfræðingur

Fríða Brá Pálsdóttir Sjúkraþjálfari

Fríða Brá Pálsdóttir
Sjúkraþjálfari